Lögreglumenn þurftu að hafa afskipti af talsvert mörgum ungmennum undir áhrifum áfengis í miðborg Reykjavíkur á menningarnótt auk þess sem tveimur skemmtistöðum var lokað vegna þess fjölda gesta innandyra sem reyndist undir lögaldri.Foreldrum og forráðamönnum var gert að sækja börn sín á lögreglustöð. Þrír voru handteknir í miðborginni grunaðir um líkamsárás með eggvopnum og hnúajárni. Þeir höfðu flúið af vettvangi en fundust fljótlega að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.Maður sem hafði tvo hnífa í fórum sínum var handtekinn í miðborginni og tveir fyrir brot á lögreglusamþykkt Reykjavíkur. Annar reyndi að efna til slagsmála og hinn streittist á móti og beitti lögreglumann ofbeldi. Sá verður kærður fyrir brot gegn valdstjórninni.Nokkrir voru einnig handteknir fyrir að