Faðir um fimmtugt hefur verið áminntur af lögreglu fyrir að skilja sjö ára son sinn eftir í átta klukkustundir á bekk í hlíðum Fuji, hæsta fjalls Japans. Drengurinn hafði aðeins gosdrykk og snarl til að seðja sárasta hungrið. BBC fjallar um málið.Starfsfólk fjallakofa gekk fram á drenginn þar sem hann sat þreyttur, blautur og hrakinn á áningarstað í um tveggja kílómetra hæð í fjallinu og tilkynnti lögreglu það umsvifalaust.Faðirinn og eldri sonur hans fundust loks í þriggja klukkustunda göngufjarlægð ofar í Fuji og lögreglumenn ávítuðu hann harðlega fyrir athæfið. Algerlega óásættanlegt væri að skilja barn eftir þótt það þýddi að faðirinn yrði sjálfur að hætta við fjallgönguna. FAÐIRINN BAÐST AFSÖKUNAR OG SAGÐI FLJÓTFÆRNI HAFA RÁÐIÐ FÖR Hann er sagður hafa beðist afsökunar á þessari flj