Um 40 slösuðust lítillega í öflugum jarðskjálfta nærri Tókýó

Um fjörutíu slösuðust lítillega þegar jarðskjálfti af stærðinni 5,8 reið yfir Ibarak-hérað austanvert í Japan klukkan fimm síðdegis að staðartíma. Áhrifa skjálftans varð mjög vart í höfuðborginni Tókýó þar sem truflanir urðu á lestarsamgöngum.Jarðskjálftastofnun Japans sagði skjálftann eiga upptök á 68 kílómetra dýpi og enga hættu á flóðbylgjum. Hún varar við sterkum eftirskjálftum næstu daga. Tilkynnt hefur verið um minni háttar tjón á byggingum í Tókýó og borginni Saitama, steinsnar frá.Ekki hafa borist tíðindi af skemmdum á kjarnorkuverum í héraðinu. Veðurstofan varar við hættu á skriðuföllum enda jarðvegur mjög gljúpur eftir úrhellisrigningu í gær og síðustu daga.Forsætisráðherrann Sanae Takaichi hefur skipað ítarlega rannsókn á því tjóni kunni að hafa orðið og að almenningi verði hald
Um 40 slösuðust lítillega í öflugum jarðskjálfta nærri Tókýó

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd