Engin flugumferð um Gardemoen fram eftir degi — ferðum SAS til og frá Osló aflýst

Komu þotu SAS frá Osló til Keflavíkur klukkan 9:50 og brottför klukkan 10:40 hefur verið aflýst. Engin flugumferð verður til og frá Gardermoen-flugvelli við Osló næstu fimm klukkustundir hið minnsta. Það er vegna vinnustöðvunar norskra flugumferðarstjóra. Þeir lögðu niður störf klukkan hálfsjö að staðartíma eða hálffimm að íslenskum tíma. VG vitnar í tilkynningu frá Avinor, sem á og rekur alla helstu flugvelli Noregs. Flugfélagið Norwegian eitt og sér hefur frestað eða fellt niður 70 ferðir og talið er að um níu þúsund farþegar finni fyrir áhrifum. Tafir geta orðið á flugferðum til og frá Noregi og innanlands langt fram eftir degi. Verkfallsaðgerðir flugumferðarstjóra hófust á föstudag eftir að samningaviðræður hjá ríkissáttasemjara runnu út í sandinn. Engin lausn virðist í sjónmáli.
Engin flugumferð um Gardemoen fram eftir degi — ferðum SAS til og frá Osló aflýst

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd