Ruben Rocha Moya, ríkisstjóri Sinaloa-ríkis í Mexíkó, hefur tilkynnt að hann ætli að láta af störfum tímabundið að nýju degi eftir að hann sneri óvænt til starfa á ný. Hann réttlæti endurhvarfið í langri færslu á X og kvaðst enga glæpi hafa framið.Moya var ásamt níu öðrum embættismönnum ákærður í apríl og eftirlýstur í Bandaríkjunum fyrir fíkniefnamakk með Sinaloa-glæpahringnum. Bandaríska dómsmálaráðuneytið hafði aldrei áður opinberlega ákært mexíkóskan embættismann.Ríkissaksóknari Mexíkó hafði mál Moyas einnig til rannsóknar. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað stjórnvöldum í Mexíkó með tollum herði þau ekki aðgerðir gegn fíkniefnahringjum.Hann hefur líka sagt landinu stjórnað af fólki sem hafi hagsmuni af eiturlyfjaviðskiptum. Bandaríkjaforseti hefur einnig boðið Sheinbaum liðsin