Þyrlupallurinn í Surtsey verður stækkaður töluvert eftir að umhverfis- og skipulagsráð Vestmannaeyjabæjar samþykkti umsókn Surtseyjarfélagsins þess efnis. Bærinn fer með skipulagsvald í eynni og skipulagsfulltrúa verður falið að gefa út framkvæmdaleyfi.Í frétt vefmiðilsins Tíguls segir að ætlunin sé að stækka pallinn úr 36 fermetrum í hundrað í ljósi þess að sérfræðingar Landhelgisgæslunnar telja hann of lítinn fyrir öruggar lendingar núverandi þyrlukosts hennar. Núverandi pallur var settur upp árið 1993.Áætlaður kostnaður er um níu milljónir króna og búist við að fjórir starfsmenn nái að ljúka verkinu á allt að sex dögum.Forsætisráðuneytið hefur samþykkt verkið með skilyrðum um að öll leyfi liggi fyrir. Náttúruverndarstofnun gaf leyfi fyrir verkinu í júlí með ströngum skilyrðum sem ráðune