Viðskiptastríð Bandaríkjanna og Kanada komst á alvarlegra stig í gær þegar slitnaði upp úr viðræðum um tollasamning.Hvorir segja hina hafa komið með skilmála á síðustu stundu sem ekki var hægt að samþykkja. Þetta varð til þess að nýir tollar Bandaríkjanna á kanadískar vörur, sem áttu að taka gildi á miðvikudaginn en var frestað um þrjá daga, tóku gildi í dag.Þá bættist 50 prósenta tollur við ýmsa vöruflokka eins og hokkíbúnað, áfengi, mjólkurvörur, föt og smávörur á borð við kerti, hundaólar, ferðatöskur og skartgripi, sem jafngildir 5,5 prósentum af útflutningi Kanada til Bandaríkjanna.„Kanada leggur á nákvæmlega sömu nýju tolla til jafns við Washington, dollar fyrir dollar, til að vernda verkafólk, bændur, fjölskyldur og fyrirtæki,“ sagði Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, í dag.