Zolani Tete, tvöfaldur heimsmeistari í hnefaleikum, var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt í Suður-Afríku á föstudag. Tete var að sögn lögreglu á leið heim til sín í bænum Mdantsane þegar tveir menn klæddir lambhúshettum stukku út úr bíl og hófu skothríð.Tæplega þrítug kona í fylgd með Tete særðist í árásinni og var flutt á sjúkrahús. Lögregla segir ástæður morðsins harla óljósar og að rannsókn sé hafin. Íþróttamálaráðherrann Gayton McKenzie sagðist í yfirlýsingu ekki getað ímyndað sér hver hefði viljað Tete feigan.Morðið varpar enn á ný ljósi á umfang ofbeldisglæpa í Suður-Afríku. Morðtíðni þar er með því hæsta sem gerist í heiminum þrátt fyrir nokkra fækkun undanfarin misseri.Tete er einna helst minnst á alþjóðavettvangi fyrir sigur með rothöggi eftir 11 sekúndur gegn landa sínum S