Frakkar útvega varnarflaugar sem grandað geta langdrægum flugskeytum

Frönsk stjórnvöld heita því að útvega Úkraínumönnum nýjar varnarflaugar til að skjóta niður flugskeyti í kjölfar þess að Rússar hafa aukið árásarþunga sinn á landið undanfarna mánuði. Langdrægum eldflaugum hefur nánast rignt yfir höfuðborgina Kyiv.Það hefur orðið til þess að mannfall meðal almennra borgara í Úkraínu er orðið meira en það var á fyrstu mánuðum innrásarinnar að mati Sameinuðu þjóðanna. Langdrægu flaugarnar fara svo hratt yfir að nær útilokað er fyrir almenning að leita skjóls undan þeim.Tugir hafa verið drepnir í árásum síðustu daga og í gær skutu Rússar skeyti að Kyiv á meðan þýski utanríkisráðherrann Johann Wadephul fundaði þar með forsetanum Volodymyr Zelensky.Emmanuel Macron Frakklandsforseti skrifaði á X að brýnt væri að útvega Úkraínumönnum öll þau tæki sem þyrfti til a
Frakkar útvega varnarflaugar sem grandað geta langdrægum flugskeytum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd