Reykjavík iðaði af lífi í allan dag á Menningarnótt og fjölbreyttir listviðburðir voru í hverju horni miðborgarinnar. Borgin fagnar 240 ára afmæli sínu í dag. Dagskrá Menningarnætur lauk með stórbrotinni flugeldasýningu klukkan tíu í kvöld. Fjöldi fólks sótti Tónaflóð á Arnarhóli þar sem fram komu JóiPé og Króli og vinir, Árný Margrét, Spacestation, Daði Freyr og Páll Óskar og Benni Hemm Hemm auk fleiri gesta. Barnakór söng með Palla í laginu Eitt af blómunum í lok tónaflóðs. Mikil stemmning var á Tónaflóði Rásar 2 í kvöld þar sem Páll Óskar og Benni Hemm Hemm komu seinastir fram frammi fyrir fjölmenni. Auk þeirra stigu Jói P og Króli á svið ásamt vinum, Árný Margrét, Spacestation og Daði Freyr.