Það var mikið fjölmenni á sveitahátíðinni Grímsævintýri á Borg í Grímsnesi í dag. Þar voru langar raðir af fólki til að komast inn á markaðinn í félagsheimilinu á Borg en það voru líka raðir við íþróttahúsið hjá þeim sem voru að fara á tombóluna – sem hefur verið haldin árlega frá 1926 af kvenfélaginu, eða í 100 ár.Allur peningurinn sem hefur safnast hefur runnið óskertur til góðra málefna.„Eins og þið sjáið hérna bak við mig er mikil aðsókn og mikið stuð á fólki og spenningur að fá vinningana sína”, segir Laufey Guðmundsdóttir, kvenfélagskona í Kvenfélagi Grímsness og bætir við: „Þetta er það sem gefur starfinu lífið og gleðina. Þetta er bara alltaf toppurinn á árinu”.Hundrað ára afmæli elstu tombólu landsins fór fram í dag hjá Kvenfélagi Grímsness á sveitahátíðinni Grímsævintýri á Borg í