Framandi straumar léku um Tjarnarbíó á laugardag þegar indverski dansarinn Bhavana Reddy sýndi listir sínar í tilefni af 80 ára sjálfstæðisafmæli Indlands. Á undan sýningunni var sýnd heimildarmynd um hina ævafornu danshefð á Indlandi en hinir ýmsu guðir og skrautklæði komu þar við sögu.