Fjölbreyttir listviðburðir eru um alla borg í tilefni Menningarnætur. Margir reimuðu á sig hlaupaskóna og studdu góðan málstað.Reykjavík hefur iðað af lífi í allan dag fjölbreyttir listviðburðir í hverju horni í miðborginni. Yfir sextán þúsund hlauparar tóku þátt í Reykjavíkurmaraþoninu.Sprækir hlauparar spændu af stað í morgun - og margir til styrktar góðu málefni. Alls hafa safnast yfir 285 milljónir króna. NÍTÍU MANNA HÓPUR BÚIN AÐ SAFNA EINNI OG HÁLFRI MILLJÓN Mínerva Björg Sverrisdóttir hljóp 10 kílómetra ásamt stórum hóp af vinum og vandamönnum.„Þetta byrjaði svolítið á því að við misstum hjón úr krabbameini og börnin þeirra störtuðu þessari söfnun og svo greinist ég um miðjan apríl og dett inn í þetta, þá bara fór boltinn að rúlla og við erum 90 manna hópur sem komum að þessu. Vi