Landhelgisgæslan hefur sinnt fjórum útköllum í dag en þar af hafa tvö verið á hafi úti.„Þetta er búið að vera ansi annasamur dagur. Þó að það komi alveg fyrir að Gæslan sinni fjórum útköllum sama daginn þá sem betur fer eru ekki margir svona dagar sem eru svona annasamir,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar.Meðal útkalla var sjúkraflug seinni partinn í dag í Flatey á Breiðafirði.„Á svipuðum tíma var hin þyrlan að sinna sjúkraflugi vegna veiks farþega um borð í skemmtiferðaskipi sem var töluvert norður af landinu. Sú beiðni barst Gæslunni í nótt. Þá var skipið reyndar bara nálægt Jan Mayen og var beðið um að sigla nær Íslandi, inn í drægi þyrlunnar,“ segir Ásgeir. Hvað er Jan Mayen? Jan Mayen er eldvirk eyja í Norður-Atlantshafi sem tilheyrir Noregi. Hún er um 5