Sú sem lést í sverðaárás í framhaldsskólanum Brinnell í Fagersta í gærkvöldi var 17 ára gömul stúlka. Sænska lögreglan staðfesti það í morgun.Lögregla var kölluð að skólanum skömmu eftir klukkan tvö að staðartíma. Þá hafði árásarmaðurinn sært fjölda fólks með sverði. Lögregla skaut hann í fótinn áður en hann var handtekinn.Árásarmaðurinn, sem er 18 ára, verður líklega ákærður fyrir morð og morðtilraunir. Hann er fyrrverandi nemandi við skólann en lögreglan hefur ekki viljað gefa frekari upplýsingar um hann né mögulegar ástæður fyrir verknaðinum. Hann hefur áður hlotið dóm fyrir líkamsárás. FJÖLDI NEMENDA VAR NÆRRI Fjöldi nemenda var nærri þegar stúlkan var drepin.„Allir tóku skyndilega til fótanna og ég elti bara því ég vissi ekki hvað hafði gerst. Við hlupum eftir gangi og ég sneri mér