Lögfræðingur félagsins sem á skipið Bandero segir óeðlilegt að kyrrsetningarkrafa Hvals hf. á skipinu hafi náð fram að ganga. Hann á von á að beiðni um endurupptöku á kyrrsetningunni verði tekin til afgreiðslu sem fyrst.Íslensk yfirvöld tóku yfir stjórn skipsins í júlí eftir að áhöfn Bandero sigldi án heimildar inn fyrir tólf mílna lögsögu landsins og ógnaði öryggi skipverja hvalveiðiskipsins Hvals 9. Skipið hefur síðan verið við höfn í Reykjavík og á Akranesi.Sýslumaðurinn á Vesturlandi kyrrsetti Bandero eftir að Hvalur hf. krafðist þess. Fyrirtækið telur sig eiga skaðabótakröfu á hendur eiganda skipsins og fór fram á að það yrði kyrrsett sem trygging fyrir því að kröfurnar fáist greiddar.Í endurupptökubeiðni segir að umtalsverðir annmarkar hafi verið á málsmeðferð sýslumannsins. Hvorki f