Þrír lagaprófessorar við Háskólann í Reykjavík (HR) gera athugasemd við fréttaflutning í Morgunblaðinu í dag, sem varðar álitsgerð þeirra fyrir forsætisráðherra. Þeir segja undirfyrirsögn á forsíðu blaðsins, þar sem vitnað var til skoðunar á álitsgerðinni, ranga.