Strætó keyrir frá Sæbraut í öll hverfi borgarinnar eftir flugeldasýninguna

Miðborg Reykjavíkur er lokuð fyrir umferð í dag vegna Menningarnætur.Ferðir Strætó hafa gengið vel það sem af er degi.Vegna götulokana þurfa vagnar að aka hjáleiðir og nú er endastöð flestra strætóleiða í Skúlagötu, fram á kvöld.Markús Vilhjálmsson, hjá Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins, segir nýtingu á vögnum hafa verið góða í dag.„Við höfum lítið verið að lenda í því að vagnar hafa verið að yfirfyllast, höfum ekki lent í því að þurfa að skilja farþega eftir á biðstöðum. Skutlurnar hafa verið nokkuð vel nýttar, sem ganga á milli Laugardalshallar og Hallgrímskirkju.“ ALLIR VAGNAR FRÁ SÓLFARINU KLUKKAN 22 Dagskrá Menningarnætur lýkur með flugeldasýningu í kvöld, um klukkan 22. Þá aka strætisvagnar frá Sólfarinu, við Sæbraut, í öll hverfi höfuðborgarsvæðisins.Við Sólfarið verða mer
Strætó keyrir frá Sæbraut í öll hverfi borgarinnar eftir flugeldasýninguna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd