Tveir menn höfðu setið í gæsluvarðhaldi hér á landi í tæpar tvær vikur en öðrum þeirra var sleppt í gær, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. Sá er erlendur ríkisborgari en gæsluvarðhald yfir hinum manninum, sem er íslenskur, er í gildi fram á mánudag.Ekki liggur fyrir hvort farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir honum. Tveir til viðbótar eru í gæsluvarðhaldi vegna málsins, einn á Spáni og annar í Póllandi.Maðurinn, erlendur ríkisborgari á fimmtugsaldri, var utandyra með mikla áverka þegar lögreglu bar að garði og lést af sárum sínum á sjúkrahúsi.Samkvæmt heimildum fréttastofu var hann stunginn og að sýru hafi verið skvett á hann.Heimildir fréttastofu herma að lögregla telji málið tengjast skipulagðri brotastarfsemi og Europol hefur aðstoðað við rannsóknina, sem er umfangsmikil