Lögreglu á stöð þrjú var í dag gert viðvart um þjófnað í verslun í hverfi 200 í Kópavogi en til handalögmála kom milli öryggisvarðar í versluninni og meints þjófs. Málið var afgreitt af lögreglu en ekki liggur fyrir hvort alvarlegir áverkar hafi hlotist af slagsmálunum.