Betur fór en á horfðist þegar jeppa var ekið framan á vöruflutningabíl

Jeppa var ekið framan á vöruflutningabíl á Vesturlandi í gærkvöldi með þeim afleiðingum að báðir bílar höfnuðu utan vegar og flutningabíllinn á hliðinni. Áreksturinn varð á Vestfjarðarvegi við Grafarland í Dölunum.Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, segir annan ökumanninn hafa verið fluttan af vettvangi með sjúkrabíl. Hann hafi þó aðeins verið með minni háttar áverka.Hugsanlegt sé að ökumaður jeppans hafi sofnað undir stýri og ekið yfir á rangan vegarhelming. Báðir bílar enduðu utan vegar andstætt sinni akstursstefnu.Neyðarlínan fékk tilkynningu um slysið klukkan 18:14 í gærkvöldi. Tveir lögreglumenn fóru á vettvang ásamt sjúkrabíl. Dráttarbílar voru fengnir til að draga báða bíla af vettvangi en jeppinn var með tengivagn í afturdragi.Jeppi og flutningabíll höfnu
Betur fór en á horfðist þegar jeppa var ekið framan á vöruflutningabíl

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd