Eltihrellar nota millifærslur til að áreita fólk

Indó sparisjóði hafa borist ábendingar um að eltihrellar misnoti millifærslur til að áreita fólk með því að millifæra óverulegar fjárhæðir á bankareikninga þess og hafa jafnvel skilaboð með sem skýringu.Viðskiptavinir bankans geta nú lokað á að sjá skýringar frá tilteknum aðilum vegna þessa.„Því miður höfum við orðið vör við að viðskiptavinir okkar hafa haft samband og látið okkur vita af því að það er verið að nota millifærslur sem ofbeldistól í raun og veru. Þá er verið að skrifa í skýringu og reyna að hafa samband við viðkomandi. Það sem er kannski miður er að það er hægt að blokkera aðila á samfélagsmiðlum og annars staðar en það er erfiðara í gegnum bankaöpp,“ segir Hjördís Elsa Ásgeirsdóttir, markaðsstjóri Indó.„Sem betur fer er þetta kannski ekki daglegt brauð en við höfum séð þetta
Eltihrellar nota millifærslur til að áreita fólk

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd