Paul Watson krefst endurupptöku vegna kyrrsetningar á skipinu Bandero af hálfu Hvals hf. og að hún verði felld niður. Hann telur augljóst að lögum um kyrrsetningu hafi ekki verið fylgt, að því er fram kemur í endurupptökubeiðni.Bandero er skip Paul Watson samtakanna, sem Watson stofnaði. Hann stofnaði einnig félagið Atlantic Marine Industries LLC. Samtökin sigldu til Íslands í þeim tilgangi að stöðva veiðar Hvals hf.Íslensk yfirvöld tóku yfir stjórn skipsins eftir að áhöfn Bandero reyndi að raska hvalveiðum á Íslandsmiðum. Skipið var kyrrsett í kjölfarið og hefur setið við höfn í Reykjavík og á Akranesi.Í endurupptökubeiðninni segir að umtalsverðir annmarkar hafi verið á málsmeðferð sýslumannsins á Vesturlandi. VERULEGUR VAFI UM TILVIST MEINTRAR KRÖFU Samkvæmt beiðninni var hvorki félag