Nemendur í Háaleitisskóla í Reykjanesbæ mega búast við spennandi skólavetri eftir að skólinn fékk að gjöf fjölda nýrra tækja og tölva. Hópur nemenda á aldrinum 8–14 ára ásamt skólastjóranum Unnari Stefáni Sigurðssyni tók í gær á móti gjöfinni frá fyrirtækinu Verne, sem rekur gagnaver í nágrenni skólans, og tæknifyrirtækinu Ofar.