Sjö létu lífið í hörðum árekstri á hraðbraut nærri Middlesbrough í Bretlandi í nótt. Tveir lögreglumenn eru meðal látinna.Áreksturinn varð þegar lögreglubíll var að eltast við fólksbíl sem grunur leikur á að hafi ekið á öfugum vegarhelmingi. Fjórtán sjúkrabílar voru sendir á vettvang og hraðbrautinni var lokað.Allir farþegar beggja bíla voru úrskurðaðir látnir á vettvangi. SAMFÉLAGIÐ Í ÁFALLI Lögreglumennirnir sem létu lífið unnu fyrir lögregluembættið í Cleveland. Lauren Somerville, yfirmaður embættisins, sagði í yfirlýsingu á samfélagsmiðlum fyrr í dag að hugur allra væri hjá ástvinum þeirra sem létust.Í umfjöllun breska ríkisútvarpsins um slysið kemur fram að slysið hafi orðið rétt fyrir klukkan fjögur í nótt. Áreksturinn hafi orðið milli lögreglubíls og Wolkswagen Passat-bifreiðar.S