Brotist inn í apótek og lyfjum stolið

Brotist var inn í Efstaleitisapótek í Reykjavík í nótt og lyfjum stolið. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu safnar upplýsingum til að komast að því hver var að verki, meðal annars upptökum úr öryggismyndavélum í nágrenninu.„Það var farið inn í nótt og einhverjum lyfjum stolið,“ segir Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Málið sé í rannsókn.Þetta er ekki í fyrsta sinn í sumar sem brotist er inn í Efstaleitisapótek.Í júlí var einn handtekinn eftir að hafa brotið upp glerhurð til að komast þangað inn. Hann komst undan á Hopp-deilibíl sem hann skildi eftir á göngustíg í Fossvogi.
Brotist inn í apótek og lyfjum stolið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd