Björgunarsveitir víða af Suðurlandi, ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar, voru kallaðar út á hæsta forgangi vegna skyndilegra veikinda göngumanns á Fimmvörðuhálsi í gærkvöld.Þoka og lítið skyggni gerðu aðgerðir erfiðar en nota þurfti línur til að flytja manninn niður bratta brekku og í bíl björgunarsveitar.Um 60 björgunarsveitarmenn tóku þátt í aðgerðinni sem lauk um klukkan tíu í gærkvöld. STADDUR Í BRATTRI BREKKU OG Í UM ÞÚSUND METRA HÆÐ Aðstoðarbeiðni barst til Neyðarlínu um hálf sex í gærkvöld en maður, sem var á göngu um Fimmvörðuháls ásamt hópi fólks, lenti í skyndilegum veikindum.Björgunarsveitir víða af Suðurlandi, frá Vík, Árborgarsvæðinu og úr Vestmannaeyjum voru kallaðar út á hæsta forgangi.Þyrla Landhelgisgæslunnar var einnig kölluð út.Aðstæður voru erfiðar á vettvangi, þoka og