Fundu leynilegt vopnabúr úti í þýskum skógi

Þýskir leyniþjónustumenn fundu vopnabúr í skógi á mörkum Berlínar og Brandenborgar fyrir nærri ári en héldu því leyndu, gerðu vopnin óvirk og komu fyrir staðsetningarbúnaði til að rekja hvert þau bærust. Vopnin voru flest skotvopn. Svæðið var vaktað í von að unnt yrði að bera kennsl á þá sem kæmu að sækja vopnin. Enginn virðist hafa gert það og telja rannsakendur líklegt að þeir sem stóðu að baki hafi áttað sig á því að felustaðurinn væri fundinn.Maður sem grunaður er um að hafa komið vopnunum fyrir var handtekinn í Rúmeníu í fyrrahaust, samkvæmt sameiginlegri rannsókn þýska ríkisútvarpsins og Süddeutsche Zeitung. Ríkissaksóknari Þýskalands hefur rannsakað málið frá því í nóvember vegna gruns um undirbúning alvarlegs ofbeldisverks sem ógnað gæti öryggi ríkisins.Talið er að vopnabúrið hafi
Fundu leynilegt vopnabúr úti í þýskum skógi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd