Viðbragðsaðilar í Túnis leita fjórtán manna sem voru um borð í bát sem sökk undan ströndum landsins. Samkvæmt yfirvöldum í Túnis var báturinn á leið til Ítalíu með fimmtán manns um borð. Einum hefði verið bjargað úr sjónum.Erlendir miðlar hafa greint frá að minnsta kosti fjórum dauðsföllum en yfirvöld hafa ekki staðfest það.Fjöldi manna leggur í ferðalag yfir Miðjarðarhafið á ári hverju til að freista þess að komast til Evrópu. Alþjóðafólksflutningastofnunin sagði fyrr í mánuðinum að tvöfalt fleiri flóttamenn hefðu farist á Miðjarðarhafi en á sama tíma í fyrra.Að minnsta kosti 914 hafa ýmist drukknað eða horfið á Miðjarðarhafi það sem af er ári.