Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa féllst á kröfu bílakaupanda um riftun á kaupum á bílnum vegna ágreinings milli hans og seljanda. Bíllinn bilaði þremur dögum eftir kaup og kaupandi krafðist fullrar endurgreiðslu kaupverðs og alls útlagðs kostnaðar vegna viðgerða auk riftunar kaupanna. Seljandi taldi sig ekki ábyrgan fyrir bilunum sem fram komu eftir kaupin.