Reynsla úr hótel- og veitingageiranum verður nýtt til þess að þróa máltíðir í skólum í Hafnarfirði. Meistarakokkarnir Bjarni Gunnar Kristinsson og Paolo Brian Guingon eru komnir til starfa hjá Matarstund ehf. sem framleiðir heimilismat úr fersku hráefni og þjónustar daglega þúsundir barna og starfsfólks í bænum.