Hvaða áhrif kann aðild að Evrópusambandinu að hafa á íslenska launþega? Svarið við þeirri spurningu er kannski ekki einfalt. En ef við einblínum aðeins á hvaða breytingar verða á sviði vinnuréttar, það er hvaða reglugerðir og tilskipanir við Íslendingar þyrftum að innleiða hér á landi frá Evrópusambandinu sem við höfum ekki gert til þessa, er svarið kannski ekki svo flókið.Nær öll löggjöf Evrópusambandsins um réttindi launþega hefur þegar verið tekin upp á Íslandi í gegnum samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sem í daglegu tali er kallaður EES-samningurinn.Innganga í Evrópusambandið myndi því breyta litlu fyrir vinnuréttarlöggjöfina á Íslandi, að mati Hrafnhildar Kristinsdóttur lögfræðings. Hún nam Evrópurétt við Háskólann í Lundi í Svíþjóð og starfaði í sjö ár á innra markaðssviði ESA,