Skólaganga barna markast ekki eingöngu af því sem gerist innan skólastofunnar. Heimanám er órjúfanlegur hluti af námi flestra barna – en aðstæður til að sinna því eru afar misjafnar. Sum börn eiga foreldra sem hafa tíma, þekkingu og tungumálafærni til að aðstoða við heimanám dag hvern.