Rignir á maraþonhlaupara og gesti Menningarnætur

Búist er við að um hundrað þúsund gestir sæki dagskrá Menningarnætur í miðborg Reykjavíkur í dag.Fyrstu hlauparar í maraþoni og hálfmaraþoni í Reykjavíkurmaraþoninu leggja af stað rúmlega 8 og reiknað er með að allir hlauparar verði komnir í mark klukkan 15:30.Það mun rigna bæði á hlaupara og gesti Menningarnætur en Veðurstofan gerir ráð fyrir suðvestan kalda eða stinningskalda með rigningu í dag.Það dregur hins vegar úr vætu í kvöld. SKÝJAÐ OG ÚRKOMUMINNA Á AUSTURLANDI Veðurstofan gerir ráð fyrir rigningu eða súld á sunnan- og vestanverðu landinu í dag en úrkomuminna verður austanlands.Hiti verður 10 til 19 stig, hlýjast á Austurlandi og Austfjörðum.Á morgun er búist við suðlægri eða breytilegri átt og skýjuðu veðri,með skúrum á víð og dreif.Næstu daga er spáð breytilegum vindáttum, me
Rignir á maraþonhlaupara og gesti Menningarnætur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd