Gámaskipið PanStar Acro siglir af stað frá Busan í Suður-Kóreu klukkan ellefu árdegis að íslenskum tíma nema eitthvað ófyrirsjáanlegt komi í veg fyrir það.Skipið heldur í norðurátt og síðan vestur til Felixstowe á Bretlandi, Rotterdam í Hollandi og Gdansk í Póllandi áður en það snýr aftur heim. Áætlað er að siglingin taki 45 daga að mati sérfræðinga sjávarútvegsráðuneytis Suður-Kóreu.Stríðið í Mið-Austurlöndum hefur valdið miklum óróa í alþjóðlegum farmflutningum og orðið til þess að stjórnvöld og skipafélög reyna að finna nýjar lausnir. Kínverska gámaskipið Dubai Tower sigldi frá hafnarborginni Ningbo 15. ágúst og siglir til norðurs um Beringssund, þaðan til vesturs meðfram ströndum Rússlands og þaðan til Felixstowe.Hefðbundin siglingaleið um Súezskurðinn er um sjö þúsund kílómetrum og tí