Carolyn Rodrigues-Birkett, fyrrverandi utanríkisráðherra Gvæjana, er efst á blaði sem arftaki Antonios Guterres sem aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. Hún hefur verið fastafulltrúi heimalandsins hjá Sameinuðu þjóðunum síðan 2020.Reuters hefur niðurstöðuna eftir þremur heimildarmönnum sem tóku þátt í óformlegri atkvæðagreiðslu öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í gær. Átta sækjast eftir embættinu. Guterres lætur af störfum um áramót þegar síðara fimm ára kjörtímabili hans lýkur.Öll fimmtán ríki ráðsins greiða atkvæði um umsækjendurna í leynilegri kosningu og stuðning níu þeirra þarf til að ná kjöri. Auk þess þarf viðkomandi að forðast það að fulltrúi einhvers þeirra fimm sem neitunarvald hafa beiti því. Allsherjarþingið staðfestir loks kjör þess sem fyrir valinu verður.Rebeca Grynspan, fo