Líkamsárás framin í miðborginni og nokkrir til ama og óþæginda við samferðafólk sitt

Lögregla rannsakar líkamsárás sem framin var í miðborginni í gærkvöld eða í nótt. Í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er hvorki tilgreint hversu alvarleg árásin var né hvort nokkur hafi verið handtekinn.Einnig bárust tilkynningar um nokkra sem voru samferðafólki sínu til ama, höfðu uppi ógnanir og hótanir ásamt því sem ölvaður maður áreitti gesti og starfsfólk á veitingastað. Þess manns bíður einnig kæra fyrir skemmdir sem hann olli þar innanstokks. Ekið var á brunahana í miðborginni.Margar tilkynningar bárust um fólk í annarlegu ástandi, ein um hundsbit, tvær um þjófnað og lögreglumenn höfðu afskipti af ökumönnum í margs konar ástandi. Einn bílstjóri hlaut sekt fyrir að aka án réttinda.
Líkamsárás framin í miðborginni og nokkrir til ama og óþæginda við samferðafólk sitt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd