Dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna veitti í gær tímabundna heimild til áframhaldandi framkvæmda við gríðarstóran veislusal á lóð Hvíta hússins. Halda má framkvæmdum áfram meðan fjallað verður um málið á lægri dómsstigum. Niðurstaðan er því áfangasigur fyrir Donald Trump forseta eftir að áfrýjunardómstóll úrskurðaði fyrr í mánuðinum að ekki mætti halda framkvæmdum ofanjarðar áfram nema með samþykki öldungadeildar þingsins. Hins vegar var heimilað að halda byggingu neðanjarðarbyrgis áfram en því var loks hætt meðan málið beið áfrýjunar. Trump kvaðst í færslu á Truth Social þakklátur Hæstarétti og sagði áfram verða byggt enda húsið mikilvægt fyrir þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Það yrði hið glæsilegasta sinnar tegundar, verkið væri á undan áætlun og undir fjárhagsáætlun. Forsetinn fyrirskipaði á