Volodymyr Zelensky forseti fordæmir harðlega drónaárás Rússlandshers á verslanamiðstöð í heimabæ hans, Kryvyi Rig, í gær þar sem sextán týndu lífi. Á annað hundrað særðust, þar af fjöldi barna.Hann segir árásina lýsa illmennsku Rússa enda hafi þeir vísvitandi gert árás á hversdagslega verslanamiðstöð þar sem fjöldi fólks var staddur. Rússar hafa hert mjög á árásum á úkraínskar borgir síðustu mánuði.Á samfélagsmiðlum birtust myndskeið sem sýna björgunarsveitir aðstoða særða á götunni verslanamiðstöðina í Kryvyi Rig meðan reykur steig upp frá byggingunni. Annar dróni skall á þaki miðstöðvarinnar hálftíma á eftir þeim fyrsta sem Zelensky segir hafa beinst að björgunarliðinu.Rússar hafa iðulega gert árásir á Kryvyi Rig frá upphafi stríðsins enda er hún um sextíu kílómetra frá víglínunni. Fjóri