Karl Gústaf Svíakonungur segist afar sorgmæddur og brugðið yfir því að eitt skiptið enn hafi árás verið gerð í skóla. Einn er látinn og þrír særðir eftir sverðaárás í framhaldsskóla í Fagersta í Svíþjóð í gær. Tveir þeirra sem særðust eru alvarlega meiddir.Í yfirlýsingu á vefsíðu konungsfjölskyldunnar sendir Karl nemendum, foreldrum þeirra, starfsfólki skólans og öllum íbúum Fagersta dýpstu samúðarkveðjur. Hugur hans væri hjá nánasta fólki þeirra sem létust og særðust.Árásarmaðurinn er átján ára og var áður nemandi við skólann. Lögregla skaut hann í fótinn áður en hann var handtekinn. Hann hefur áður hlotið dóm fyrir líkamsárás.Í maí voru nemendur skólans sendir heim eftir að hótun barst, en ekki liggur fyrir hvort tengsl séu á milli hótunarinnar og árásarinnar í dag. Ekkert bendir til að