Gagnaversfyrirtækið Verne Global og tæknifyrirtækið Ofar gáfu Hvassaleitisskóla á Ásbrú veglega gjöf í dag: Þrívíddarprentara, tölvur, sýndarveruleikagleraugu og fleira sem nýtist í nýsköpunar- og tæknismiðju skólans.Unnar Stefán Sigurðsson skólastjóri Hvassaleitisskóla segir forsöguna vera þá að hann hafi átt samtal við nágranna sinn.„Þetta kemur til af því að við búum í litlu samfélagi, samfélagi sem vill stöðugt gera betur og vera í framþróun. Þetta sprettur út frá samtali tveggja nágranna,“ segir Unnar.Nágranni Unnars starfar hjá Verne Global sem er með gagnaver í nágrenni skólans á Ásbrú. Fyrirtækið vildi styðja við nærumhverfið og tók höndum saman með Ofar og afhenti Háaleitisskóla gjöfina í dag.Nýsköpunarsmiðjan hefur slegið í gegn hjá nemendum, sem hafa til að mynda tekið þátt og g