Palestínskar fjölskyldur í ellefu daga herkví

Ísraelskt landtökufólk hefur haldið palestínskum fjölskyldum í þorpi á Vesturbakkanum í herkví í ellefu daga. Ísraelsher hefur lýst því yfir að svæðið sé lokað hernumið svæði og segist vera að halda uppi lögum og reglu.Ísraelsher fjarlægði landtökumennina eftir þrýsting frá Bandaríkjunum en íbúar í húsunum sem eru í herkví segja þá samt nærri.Samkvæmt tölum frá Sameinuðu þjóðunum hafa ísraelskir hermenn og landtökufólk drepið 76 Palestínumenn á Vesturbakkanum á þessu ári, þar af 18 börn.Ísrael hyggst byggja um 3.400 heimili á E1-svæðinu austan við Jerúsalem. Bretland, Frakkland, Þýskaland og Ítalía hafa lýst yfir áhyggjum og Þorgerður Katrín utanríkisráðherra tekur undir þær áhyggjur.
Palestínskar fjölskyldur í ellefu daga herkví

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd