Ísland var eitt af fyrstu löndum heims til að slökkva á fjarskiptakerfum sem kallast 2G og 3G. Við taka kerfin 4G og 5G sem eiga að vera með sömu og/eða betri útbreiðslu.En þetta hefur ekki gengið snuðrulaust fyrir sig. Sagðar hafa verið fréttir af verra fjarskiptasambandi, sérstaklega á landsbyggðinni, og komið hafa upp tilvik þar sem fólk í neyð nær ekki sambandi við neyðarlínuna.Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur óskað eftir samantekt Fjarskiptastofu á þessu máli. „Það munu koma erlendir sérfræðingar til að kanna útbreiðsluna á 4G og 5G,“ segir Eyjólfur.Og hvenær verður það?„Það verður væntanlega núna í haust. Ég er búinn að senda beiðni til Fjarskiptastofu um að fara í þessa úttekt ásamt ítarlegra bréfi um það hvaða þætti þurfi að skoða.“Hvernig varð þér við þegar þú heyrðir fré