Formaður Sambands Íslenskra sveitarfélaga segir gjaldskrárhækkanir sveitarfélaganna ekki vera sökudólg vaxtahækkana. Launafólki hafi þó fjölgað í opinberri þjónustu sveitarfélaganna fyrr á árinu. Sveitarfélögin séu jafnframt reiðubúin í að taka þátt í baráttu gegn verðbólgu og vandamálið verði ekki leyst nema með samvinnu.