Lögregla hefur enn ekki nýtt heimild til að setja rafræn ökklabönd á eltihrella. Stundum vita þolendur ekki hver gerandinn er – og dæmi eru um að einn og hinn sami hrelli fjölda fólks.„Við erum að fá svona 60-80 mál á ári,“ segir Marta Kristín Hreiðarsdóttir, deildarsérfræðingur hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.Fjöldi mála segir ekki alla söguna – því í einu máli geta falist mörg brot. „Ef það er t.d. einn gerandi en fimm einstaklingar, þá teljast það sem fimm brot,“ segir Marta Kristín. FARA Á MILLI OG FINNA SÉR NÝJA ÞOLENDUR „Svo erum við líka með dæmi um að sami einstaklingurinn fer á milli, gerandinn fær sér nýjan og nýjan brotaþola.“Eru þetta raðeltihrellar?„Já og nei. Ég veit ekki hvort það að segja rað sé rétt, því það er ekki þannig að hann taki við næsta þegar einn hættir.