Það er jákvætt að matvöruverð sé ekki að keyra upp verðbólgu, segir verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ. Hægt hefur á hækkunum á matarverði síðustu mánuði og sumir birgjar hafa lækkað verð í sumar.„Það sem við erum að sjá síðustu mánuði er að það er að hægja á hækkunum sem okkur þykir mjög jákvætt,“ segir Bjarki Steinn Benjamínsson, verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ.Í gegnum tíðina hafi það verið takturinn yfir sumartímann.„Við sjáum það líka í okkar könnunum heilt yfir að þetta er ekki eins mikið hástökk og sumir birgjar hafa einmitt lækkað verð núna í sumar.“Verð sé ekki beint að lækka þó að stórir birgjar á borð við Nóa Síríus og Biobú hafi lækkað verð undanfarið. SÍFELLT ERFIÐARA FYRIR NEYTENDUR AÐ BERA SAMAN VERÐ Samkvæmt nýrri úttekt verðlagseftirlitsins munar um 2.000 krónum