Jónas Már Torfason segir upphrópanir bæjarráðs Kópavogsbæjar vera „algjörlega ótímabærar.“ Samkomulag ríkis og sveitarfélaga um börn með fjölþættan vanda sé hluti af stærri heildarendurskoðun á flóknum málaflokki og sú vinna sé yfirstandandi. Leitt sé að staðfesta hans með eigin sannfæringu skuli leiða til aðdróttana frá pólitískum mótherjum hans.