Borgfirðingum eystra áfram ráðlagt að sjóða neysluvatn yfir helgina

Íbúum á Borgarfirði eystra er ráðlagt að sjóða neysluvatn áfram yfir helgina vegna E. coli-bakteríumengunar.Í tilkynningu frá HEF veitum í dag segir að ekki hafi tekist að setja upp gegnumlýsingartæki til að sótthreinsa vatnið og tengingu við vatnstank fyrir helgina. Sú vinna haldi áfram á mánudag og stefnt sé að því að tækið komist þá í gagnið. Truflanir verði á afhendingu á vatni samhliða þessu.Mengunin greindist við reglubundna sýnatöku heilbrigðiseftirlits í síðustu viku. Þegar í ljós kom að E. coli-bakteríumengun var í vatninu var íbúum ráðlagt að sjóða allt neysluvatn og mælst er til þess að þeir geri það áfram um helgina. MENGUN GERI OFT VART VIÐ SIG SÍÐSUMARS Lára Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Austurlands, segir erfitt að segja til um nákvæmlega hvaðan me
Borgfirðingum eystra áfram ráðlagt að sjóða neysluvatn yfir helgina

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd