Nýr prins hefur verið tekinn inn í belgísku konungsfjölskylduna, sá er 26 ára fyrrverandi bílasali. Yngri bróðir Belgíukonungs hefur formlega viðurkennt hann sem son sinn og erfingja.Clément Vandenkerckhove var 16 ára þegar móðir hans, þekkt söng- og leikkona í Belgíu, sagði honum að raunverulegur faðir hans væri Laurent prins. Fjórum árum síðar hafði hann safnað kjarki og hringdi í prinsinn.Svo fór að þeir ákváðu að taka DNA-próf og faðernið var staðfest. Fyrir um hálfu ári var Clément formlega tekinn inn í konungsfjölskylduna. En það fór ekki hátt þá en nú er allt orðið opinbert. FÆR EKKI SÆTI Í ERFÐARÖÐINNI Laurent prins er yngri bróðir Filippusar Belgíukonungs. Hann hefur verið nokkuð umdeildur, 2018 var ákveðið að lækka laun hans því hann mætti í fullum herklæðum til veislu í kínve