Forsætisráðherra segir hækkun stýrivaxta vonbrigði. Hækkanir opinberra gjalda sem ríkisstjórnin hafi staðið fyrir séu ekki hærri en þær sem áður hafa orðið og áhrif þeirra á verðbólguna ekki meiri en gengur og gerist.Verðbólga hefur verið yfir 5% það sem af er ári og mældist 5,3% í júlí. Samkvæmt nýbirtri spá Seðlabankans er talið að hún aukist enn frekar á næstu mánuðum en hjaðni tiltölulega hratt þegar kemur fram á næsta ár. Hækkun opinberra gjalda og áhrif stríðsátaka í Mið-Austurlöndum auki verðbólgu.„Þetta er auðvitað vonbrigði að fá þessa hækkun á okkur,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.„Við höfum verið með verðbólguvæntingar á aðeins of háum stað það sem af er þessu ári. Við fórum vel af stað, verðbólga var vel undir 4% fyrsta ár þessarar ríkisstjórnar og við vorum í va